Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson var með um 43.000 evrur í mánaðarlaun hjá ungverska stórliðinu Pick Szeged, samkvæmt upplýsingum Aftonbladet. Það gera um 5,9 milljónir íslenskra króna á mánuði miðað við núverandi gengi og rúmlega 71 milljón króna á ársgrundvelli. Aftonbladet segir að Gottfridsson hafi með þessu að öllum líkindum verið einn launahæsti handknattleiksmaður heims á þeim tíma. Gottfridsson gekk til liðs við Szeged frá Flensburg sumarið 2025 eftir tólf ára dvöl hjá þýska félaginu. Hann skrifaði undir þriggja ára samning í Ungverjalandi og hafði sjálfur séð fyrir sér að ljúka atvinnumannaferlinum hjá félaginu. Dvölin í Ungverjalandi varð hins vegar mun styttri en áætlað var. Gottfridsson var tekinn úr leikmannahópi Szeged áður en félagið rifti samningi hans í apríl á þessu ári. Gottfridsson sagði á þeim tíma að ákvörðunin hefði komið án skýringa eða samtals við sig og í kjölfarið hófst lögfræðilegt ferli milli hans og félagsins. Málinu lauk í júlí þegar Gottfridsson og Szeged náðu samkomulagi. Félagið sagði í opinberri yfirlýsingu að um endanlega og gagnkvæmt ásættanlega lausn væri að ræða. Szeged lýsti jafnframt yfir eftirsjá vegna stöðunnar og tók fram að Gottfridsson hefði sýnt fagmennsku og hegðað sér eins og íþróttamanni sæmdi á meðan hann var hjá félaginu. Aðeins nokkrum dögum síðar var tilkynnt að Gottfridsson væri á leið heim til IFK Ystad, uppeldisfélags síns. Hann leikur því með IFK Ystad í sænsku B-deildinni, Allsvenskan, á yfirstandandi tímabili þrátt fyrir að hafa fengið tilboð frá félögum í fremstu röð í Evrópu. Hinn 34 ára gamli Gottfridsson hefur verið einn fremsti handboltamaður heims undanfarinn áratug. Hann varð Evrópumeistari með Svíþjóð árið 2022 og var valinn verðmætasti leikmaður mótsins, en hann hafði einnig hlotið sömu viðurkenningu á EM 2018.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.