Ásgeir Bryde með 9 mörk í öruggum sigri Gróttu
Eyjólfur Garðarsson

Grótta og Hvíti Riddarinn mættust í kvöld í Grill 66 deild karla en leikið var á Nesinu.

Gróttu menn byrjuðu mun betur og komust í 4-0. Leiddu þeir allan fyrri hálfleikinn og juku forskotið smátt og smátt. Gengu þeir loks til búningsherbergja með 8 marka forskot.

16-8 voru hálfleikstölur.

Í seinni hálfleik stigu Gróttu menn bara ennþá meira á bensíngjöfina og komust mest í 15 marka forskot. Lokatölur voru 36-21.

Hjá Gróttu var Ásgeir Bragi Bryde markahæstur með 9 mörk. Hannes Pétur og Þórður Magnús vörðu 16 skot.

Hjá Hvíta Riddaranum var Leó Halldórsson markahæstur með 6 mörk. Bergvin Snær varði 8 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top