ÍR-ingar keyrðu yfir Víðismenn í seinni hálfleik
Sævar Jónasson

Í kvöld mættust ÍR-ingar og Víðis menn úr Garði í Grill 66 deild karla en leikið var í Skógarselinu.

Víðis menn byrjuðu óvænt mun betur leikinn. Eftir rúmar 10 mínútur voru þeir komnir í 4-7. Þá vöknuðu ÍR-ingar til lífsins og sneru blaðinu við. Mikill viðsnúningur varð á stuttum tíma og þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks þá voru ÍR-ingar 7 mörkum yfir. Hálfleikstölur 20-13.

Í seinni hálfleik er óhætt að segja að ÍR-ingar hafi keyrt yfir Víðis menn. Bensínljósið var fljótt byrjað að blikka hjá þeim og ÍR-ingar gengu á lagið. Þegar flautað var til loka leiksins var munurinn 21 mark. 43-22 urðu lokatölur fyrir ÍR.

Hjá ÍR var Bernand Darkoh markahæstur með 7 mörk. Markvarslan skilaði þeim 16 boltum vörðum.

Hjá Víði voru Eiríkur Guðni Þórarinsson og Szymon Kowal markahæstir með 6 mörk. Markvarslan skilaði þeim 6 boltum vörðum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top