Guðjón Valur segist hafa brugðist sem þjálfari
UWE ANSPACH /AFP

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, tók óvæntu tapi liðsins gegn PGE Wybrzeże Gdańsk í Evrópudeildinni í gærkvöldi mjög nærri sér og sagðist sjálfur hafa brugðist sem þjálfari.

Gummersbach tapaði leiknum 38–34 á heimavelli eftir sveiflukenndan leik. Þýska liðið lenti snemma í vandræðum og var komið 10–5 undir þegar Guðjón Valur tók leikhlé og lét sína menn heyra það.

„Fáránlegt hvernig þið komið fram fyrir framan okkar stuðningsmenn. Þeir eiga þetta ekki skilið,“ sagði Guðjón Valur í leikhléinu. Gummersbach vann sig aftur inn í leikinn og var komið með 19–17 forystu þegar flautað var til hálfleiks.

Pólska liðið gafst hins vegar ekki upp og sneri leiknum aftur sér í hag í síðari hálfleik. Gdańsk gekk á lagið og tryggði sér að lokum óvæntan fjögurra marka sigur, 38–34. Þorvaldur Örn Þorvaldsson skoraði tvö mörk fyrir pólska liðið.

Guðjón Valur var afar vonsvikinn eftir leik og tók stóran hluta ábyrgðarinnar á úrslitunum á sig.

„Ég er auðvitað mjög vonsvikinn en ég verð að verja strákana mína. Í dag brást ég sem þjálfari, því mér tókst ekki að útskýra fyrir strákunum hversu mikilvægur þessi leikur var fyrir okkur,“ sagði Guðjón Valur eftir leik.

Hann sagði jafnframt að leikmenn Gummersbach hefðu mögulega talið verkefnið auðveldara en raunin varð. „Kannski héldu þeir að þeir gætu tekið þennan leik með vinstri hendinni.“

Guðjón Valur hrósaði á sama tíma leikmönnum Gdańsk fyrir frammistöðuna og sagði pólska liðið hafa sýnt mikla baráttu, taktískan aga og gæði.

Tapið var því mikið högg fyrir Gummersbach sem fékk heldur betur kalda sturtu á heimavelli og Guðjón Valur var ekki að leita að afsökunum eftir leikinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top