Íslendingaliðin á sigurbraut á Norðurlöndunum
Savehof

Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni á Norðurlöndunum í kvöld en fyrsta umferðin í kvennadeildinni í Svíþjóð hófst í kvöld þegar meistararnir í Sävehof tóku á móti Boden á heimavelli sínum.

Elín Klara Þorkelsdóttir var að venju í liði Sävehof en hún hafði frekar hægt um sig að sinni, skoraði þrjú mörk úr sex skotum og klikkaði eina vítinu sínu, bætti við tveimur stoðsendingum og fékk eina brottvísun að auki. Sigurinn var aldrei í hættu hjá Sävehof því þær keyrðu yfir Boden og unnu þægilegan sigur, 39-28.

Dana Björg Guðmundsdóttir var í liði Larvik sem vann góðan heimasigur á Storhamar, 27-25. Dana Björg kom lítið við sögu leiknum að þessu sinni. Larvik eru ennþá ósigraðar og sitja á toppi deildarinnar með fullt hús stiga ásamt Tertnes með tíu stig eftir fimm leiki.

Í Danmörku unnu Horsens heimasigur gegn Álaborg, 26-23 þar sem Katrín Tinna Jensdóttir klikkaði á eina skoti sínu í leiknum og fékk eina brottvísun. Mikilvægur sigur fyrir Horsens þar sem þær eru núna með fjögur stig eftir fimm leiki og skildu Álaborg eftir með núll stig.

Úrslit kvöldsins:

Sävehof 39-28 Boden

Larvik 27-25 Storhamar

Horsens 26-23 Aalborg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top