Úkraína hætti við að hætta – Enn óvissa hjá HSÍ
ATTILA KISBENEDEK / AFP

Óvissan í kringum þátttöku Úkraínu í undankeppni Evrópumóts karla 2028 hefur tekið nokkrum snúningum á undanförnum dögum. Ísland á að hefja undankeppnina gegn Úkraínu 4. nóvember næstkomandi.

Úkraínska handknattleikssambandið tilkynnti HSÍ fyrst að liðið myndi draga sig úr keppni en sneri þeirri ákvörðun við skömmu síðar.

Handkastið greindi frá því um helgina að úkraínska handknattleikssambandið hefði varað við því að það þyrfti „mjög líklega“ að draga lið landsins úr alþjóðlegum keppnum vegna gríðarlega erfiðrar fjárhags- og öryggisstöðu í landinu.

Stríðið tekur sinn toll: Úkraína gæti dregið öll lið úr keppni

HSÍ hafði fengið tölvupóst frá úkraínska sambandinu þar sem tilkynnt var að sambandið hygðist draga lið sitt úr undankeppninni og myndi ekki taka þátt. Aðeins tveimur dögum síðar barst HSÍ hins vegar póstur frá Handknattleikssambandi Evrópu, EHF, þar sem óskað var eftir því að HSÍ biði með að fella leik Íslands og Úkraínu niður og gera aðrar ráðstafanir vegna stöðunnar.

Í kjölfarið barst annar póstur frá úkraínska sambandinu þar sem fyrri ákvörðun hafði verið dregin til baka og tilkynnt að Úkraína ætlaði sér að taka þátt í undankeppninni.

Í lok síðustu viku fékk HSÍ síðan frekari staðfestingu frá EHF um að karlalandslið Úkraínu hygðist taka þátt í undankeppni EM 2028. Á sama tíma var tilkynnt að U17 ára landslið kvenna hjá Úkraínu myndi ekki taka þátt í undankeppni Evrópumótsins í þeim aldursflokki sem fram fer í nóvember.

Þrátt fyrir að Úkraína hafi nú tilkynnt um þátttöku sína ríkir enn ákveðin óvissa í kringum leikinn gegn Íslandi.

HSÍ hefur í tvígang óskað eftir upplýsingum frá úkraínska sambandinu um hvenær landsliðið hyggist koma til Íslands. Þær upplýsingar eru meðal annars nauðsynlegar vegna hótelbókana og annars skipulags í kringum leikinn en engin svör hafa borist við þeirri beiðni.

„Það er ákveðin óvissa í gangi en Úkraína hefur samt sem áður sent HSÍ og tilkynnt að þeir ætli sér að taka þátt,“ sagði Jón Gunnlaugur Viggósson, íþróttastjóri HSÍ, í samtali við Handkastið.

HSÍ hefur jafnframt boðið úkraínska sambandinu að leika heimaleik Úkraínu gegn Íslandi hér á landi þegar liðin eiga að mætast á ný í maí á næsta ári. Hugmyndin væri því að báðir leikir liðanna færu fram á Íslandi.

Úkraínska sambandið svaraði HSÍ hins vegar á þá leið að EHF myndi ekki heimila slíkt fyrirkomulag.

Miðað við nýjustu upplýsingar stendur því enn til að Ísland og Úkraína mætist 4. nóvember. Úkraína hefur staðfest við HSÍ að liðið ætli að taka þátt í undankeppninni en HSÍ bíður enn eftir nánari upplýsingum um komu liðsins til landsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top