
Átta leikir fóru fram í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld. Gummersbach tapaði óvænt heima fyrir Wybrzeze Gdansk, Sävehof vann öruggan sigur á Sesvete og Holstebro fór létt með Karvina. Þá vann Izvidac nauman sigur á Chambery og Buzau og Águas Santas skildu jöfn. Valsmenn sóttu sín fyrstu stig með sigri á Mors-Thy á Hlíðarenda, Elverum unnu Hammarby og Benfica steinlá fyrir Torrelavega. Gummersbach 34-38 Wybrzeze Gdansk (17-19) Þorvaldur Örn Þorvaldsson og félagar hans í Wybrzeze Gdansk vann góðan útisigur á Gummersbach, 38-34, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik. Pólsku gestirnir héldu frumkvæðinu eftir hlé og náðu að halda þýska liðinu í hæfilegri fjarlægð allt til leiksloka. Nikola Roganovic var markahæstur Gummersbach með 9 mörk en Ludvig Hallbäck og Kristjan Horzen skoruðu 5 mörk hvor. Hjá Gdansk var Mikolaj Czaplinski markahæstur með 8 mörk og Filip Michalowicz skoraði 7. Þorvaldur Örn skoraði tvö mörk úr þremur skotum. Elliði Viðarsson skoraði 3 mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn Einarsson gerði tvö mörk. Garðar Ingi Sindrason kom einnig við sögu og skoraði eitt mark. Izvidac 34-33 Chambery (19-17) Izvidac hafði betur í hörkuleik gegn Chambery og tryggði sér eins marks sigur, 34-33. Heimamenn leiddu með tveimur mörkum í hálfleik og þrátt fyrir áhlaup franska liðsins undir lokin héldu þeir út. Amer Sahinovic var markahæstur hjá Izvidac með 7 mörk og Danijel Stijovic og Kerim Semic skoruðu 5 hvor. Dimitri Claude og Lucas Vanegue voru atkvæðamestir hjá Chambery með 7 mörk hvor en Elio Zammit skoraði 5. Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Chambery. Sävehof 34-27 Sesvete (15-13) Sænska liðið Sävehof vann sjö marka sigur á Sesvete, 34-27. Heimamenn leiddu með tveimur mörkum í hálfleik en juku forskotið jafnt og þétt eftir hlé og sigldu örugglega fram úr króatíska liðinu. Sebastian Durlanu og David Sandberg voru markahæstir Sävehof með 7 mörk hvor og Jesper Røisland skoraði 6. Hjá Sesvete skoraði Tonci Ivanišević 7 mörk og Ivan Dumencic gerði 5. Birgir Steinn Jónsson lék með Sävehof en skoraði ekki í leiknum. Buzau 30-30 Águas Santas (13-14) Buzau og Águas Santas skildu jöfn, 30-30, í spennandi leik. Portúgalska liðið var einu marki yfir í hálfleik en heimamenn komu til baka og tryggðu sér að lokum jafntefli. Alexandru Tarita var markahæstur Buzau með 9 mörk en Zanas Gabrielius Virbauskas skoraði 5. Hjá Águas Santas voru Francisco Fontes og Miguel Baptista markahæstir með 5 og 4 mörk. Karvina 23-33 Holstebro (11-16) TTH Holstebro vann tíu marka sigur á Karvina, 33-23. Gestirnir náðu fimm marka forskoti fyrir hálfleik og héldu áfram að bæta við eftir hlé. Karvina átti erfitt með að halda í við danska liðið sem kláraði leikinn með sterkum kafla. Jonas Patzel var markahæstur Karvina með 7 mörk og Vojtech Prasivka skoraði 5. Hjá Holstebro skoraði Johannes Berg Andrason mest, 6 mörk, en Joachim Lyng Als og Emil Reinholdt Søndergaard gerðu 5 mörk hvor. Eskil Dahl Reitan skoraði 4. Johannes Berg Andrason átti frábæran leik fyrir Holstebro og skoraði 6 mörk. Arnór Atlason er þjálfari Holstebro. Valur 39-28 Mors-Thy Valsmenn unnu frábæran 39-28 sigur á danska liðinu Mors-Thy á Hlíðarenda. Valur hafði yfirhöndina allan leikinn og refsuðu gestunum grimmt fyrir hver mistök. Arnór Snær Óskarsson var markahæstur hjá Val með 10 mörk og Oliver Wosniak og Simon Skovhus voru atkvæðamestir hjá Mors-Thy með 6 mörk hvor. Benfica 24-31 Torrelvega Benfica töpuðu nokkuð stórt gegn Torrelavega á heimavelli í kvöld. Ander Labayen var markahæstur hjá Benfica með 6 mörk og Jakub Prokup var markahæstur með 6 mörk fyrir Torrelavega. Breki Hrafn Árnason varði 2 af þeim 5 skotum sem hann fékk á sig í marki Benfica. Elverum 37-28 Hammarby Elverum unnu stórsigur á Hammarby og komust sænsku gestirnir ekki nálægt Elverum í kvöld. Frederik Emil Pedersen átti stórleik fyrir Elverum og var markahæstur með 14 mörk. Martin Dolk var atkvæðamestur hjá Hammarby með 7 mörk. Tryggvi Þórisson komst ekki á blað fyrir Elverum í kvöld.Gdansk kom á óvart í Gummersbach
Izvidac hélt út gegn Chambery
Sävehof með öruggan sigur
Buzau og Águas Santas skildu jöfn
Holstebro skellti Karvina
Valsmenn með stórsigur á Hlíðarenda
Benfica steinlágu á heimavelli
Elverum með stórsigur á Hammarby
Úrslit kvöldsins

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.