
Danski handboltasérfræðingurinn Bent Nyegaard sparar ekki stóru orðin eftir ellefu marka tap Mors-Thy gegn Val, 39-28, í Evrópudeildinni í gærkvöldi en um var að ræða leik í 1.umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Valur var með yfirhöndina allan leikinn og leiddi í hálfleik með fjórum mörkum, 19-15. Valur jók forskotið verulega í síðari hálfleik. Danirnir áttu engin svör við leik Valsmanna og þurftu að sætta sig við stórtap. Valsmenn með stórsigur í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar Nyegaard, sem er sérfræðingur hjá TV 2 SPORT, segir frammistöðu Mors-Thy hafa verið mikil vonbrigði. Hann bendir sérstaklega á að Valur sitji í 8. sæti Olís-deildarinnar. „Mors-Thy veldur miklum vonbrigðum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar gegn íslenska liðinu Val frá Reykjavík, sem er þessa stundina í 8. sæti efstu deildar á Íslandi, Olís-deildarinnar. Tapið, 39-28, í íslensku höfuðborginni bar öll einkenni niðurlægingar og það mátti sjá á öllum leikmönnum Mors-Thy,“ segir Nyegaard á vef TV 2 SPORT. Vöknum með báða fætur á jörðinni - sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals í viðtali við Handkastið eftir leik. Valur hafði tapað tveimur fyrstu heimaleikjum sínum í Olís-deildinni gegn Fram og KA en unnið Selfoss og HK í fyrstu fjórum leikjum sínum. Mors Thy hefur nú ekki byrjað tímabilið í Danmerku með merkilegum hætti. Liðið er með sex stig að loknum sjö umferðum og eru í 10. sæti deildarinnar. Valsmenn verða í eldlínunni á heimavelli á föstudaginn þegar Þórsarar koma í heimsókn í 5.umferð Olís-deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.