Sex leikir fóru fram í 3.umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi. Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk þegar Barcelona vann Dinamo Bucuresti en Reynir Þór Stefánsson komst einnig á blað í sigri Melsungen á Nantes. Kristján Örn Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir Skanderborg í sögulegum sigri liðsins á Montpellier. Þá fór Mathias Gidsel á kostum og skoraði 17 mörk í sigri Füchse Berlin á Porto á heimavelli. Hér að neðan má sjá hápunkta úr öllum fimm leikjum gærdagsins í Meistaradeildinni. Barcelona 34-27 Dinamo Bucuresti (16-13) Melsungen 28-23 Nantes (14-11) Füchse Berlin 40-32 Porto (20-17) Zagreb 23-33 Aalborg (12-17) Vardar 26-32 Wisla Plock (13-15) Skanderborg-Árósum 36-32 Montpellier (15-13)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.