Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) og Coca-Cola á Íslandi hafa framlengt samstarfssamning sinn til ársloka 2031. Þetta kom fram í tilkynningu frá HSÍ í vikunni. Með nýjum samningi er ljóst að bikarkeppni HSÍ í karla- og kvennaflokki mun áfram bera nafnið Powerade-bikarinn næstu árin. Jón Halldórsson, formaður HSÍ, fagnar samningnum og segir hann mikilvægan fyrir áframhaldandi uppbyggingu íslensks handbolta. „Það er okkur mikið ánægjuefni að framlengja samstarfið við Coca-Cola á Íslandi til ársloka 2031. Fyrirtækið hefur staðið þétt við bakið á íslenskum handbolta um árabil og Powerade bikarinn er orðinn fastur liður í handboltaárinu. Samningur til svona langs tíma gefur okkur stöðugleika og gerir okkur kleift að halda áfram að efla umgjörð íþróttarinnar,“ segir Jón í tilkynningunni. Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi, tekur í sama streng og segir fyrirtækið stolt af samstarfinu við íslenskan handbolta. „Við erum afar ánægð með að framlengja samstarfið við HSÍ til ársins 2031. Íslenskur handbolti á sterkan sess í íslensku samfélagi og við erum stolt af því að Coca-Cola og Powerade geti áfram verið hluti af þeirri vegferð.“ Atli segir jafnframt að langtímasamningurinn gefi tækifæri til að styðja enn frekar við handboltann á öllum stigum. „Langtímasamstarf sem þetta gefur okkur tækifæri til að byggja enn frekar ofan á það góða starf sem hefur verið unnið og styðja við handboltann, allt frá yngri flokkum upp í fremstu lið landsins,“ segir Atli. Samstarf HSÍ og Coca-Cola hefur staðið yfir um árabil og með nýjum samningi er tryggt að Powerade-nafnið verði áfram á bikarkeppni karla og kvenna til ársloka 2031.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.