Það var heldur óvenjuleg ástæða fyrir því að Magnus Norlyk, leikmaður danska stórliðsins Álaborgar, var ekki með liðinu þegar það heimsótti Zagreb í Meistaradeild Evrópu á fimmtudagskvöldið í síðustu viku. Norlyk átti að vera í leikmannahópi Álaborgar fyrir leikinn í Króatíu en mistök við bókun flugmiða urðu til þess að hann komst ekki með liðinu í ferðina. Frá þessu greindi dansk miðillinn, TV 2 Sport en Norlyk þurfti því að fylgjast með liðsfélögum sínum heiman frá Danmörku. Norlyk var ekki eini leikmaðurinn sem vantaði í hóp Álaborgar því norska stórstjarnan Sander Sagosen var einnig fjarverandi, en í hans tilfelli voru það meiðsli sem komu í veg fyrir þátttöku. Fjarvera Norlyks kom þó ekki að sök því Álaborg vann sannfærandi tíu marka sigur, 33–23, á króatíska liðinu. Norlyk var síðan kominn aftur í leikmannahóp Álaborgar í dag þegar liðið vann KIF Kolding, 37–32, í dönsku úrvalsdeildinni. Hann skoraði þrjú mörk úr þremur skotum í leiknum. Álaborg tekur aftur á móti Zagreb í Meistaradeildinni á miðvikudaginn og þá ætti Norlyk að geta látið til sín taka, að því gefnu að flugmiðamálin verði ekki aftur til trafala.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.