Íslenska landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir fær nýjan þjálfara þegar hún gengur til liðs við danska úrvalsdeildarfélagið Ikast næsta sumar. Félagið hefur tilkynnt að Claus Mogensen láti af störfum sem aðalþjálfari liðsins að loknu yfirstandandi tímabili. Elín Klara samdi við Ikast í september síðastliðnum til þriggja ára og gengur til liðs við félagið næsta sumar frá sænska meistaraliðinu Sävehof. Ikast tilkynnti í vikunni að félagið og Claus Mogensen hefðu komist að sameiginlegri niðurstöðu um að framlengja ekki samstarfið þegar samningur hans rennur út næsta sumar. Mogensen kom til Ikast í febrúar 2025 sem aðstoðarþjálfari en tók við starfi aðalþjálfara í nóvember sama ár. Hann hefur einnig verið landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Færeyja frá árinu 2023 og stýrði liðinu á sitt fyrsta stórmót. Daniel Grønhøj, framkvæmdastjóri Ikast, segir að félagið sé þegar byrjað að leita að eftirmanni Mogensen og vonist til að geta kynnt nýjan þjálfara á næstunni. Í samtali við TV 2 Sport sagði Grønhøj að helst vildi hann ganga frá ráðningunni strax í þessari viku en taldi þó ólíklegt að það tækist. Mogensen hefur sjálfur ekki ákveðið hvert næsta skref verður á þjálfaraferlinum en segist opinn fyrir því að taka við liði í Danmörku eða erlendis. Ikast hefur byrjað tímabilið vel og unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í dönsku úrvalsdeildinni. Þá er liðið komið í átta liða úrslit dönsku bikarkeppninnar og tekur þátt í Evrópudeildinni eftir áramót. Elín Klara verður ekki eini nýi leikmaðurinn hjá Ikast næsta sumar því félagið hefur einnig tryggt sér norsku leikmennina Fridu Brandbu Andersen og Selmu Henriksen.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.