Misstu þrjú börn á meðgöngu – Nú eiga þau von á dreng
AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP

Portúgalski landsliðsmarkvörðurinn Gustavo Capdeville, leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro og liðsfélagi Benedikts Gunnars Óskarssonar og Jóhannes Berg Andrasonar hefur opnað sig um erfiða lífsreynslu sína og sambýliskonu sinnar, Söru Oliveira, í viðtali við danska miðilinn TV Midtvest.

Capdeville og sambýliskona hans hafa þrisvar sinnum misst barn á meðgöngu en eiga nú von á dreng í febrúar á næsta ári. Markvörðurinn, sem gekk til liðs við Holstebro frá portúgalska stórliðinu Benfica í sumar, segir að síðustu ár hafi verið afar erfið fyrir þau hjónaleysin.

Í fyrsta skiptið höfðu þau þegar heyrt hjartslátt barnsins og ákveðið nafn áður en þau misstu það. Í kjölfarið fylgdu tvö önnur fósturlát án þess að læknar gætu fundið skýringu á því hvers vegna meðgöngurnar gengu ekki upp.

Þrátt fyrir áföllin segist Capdeville aldrei hafa íhugað að gefast upp á draumnum um að verða faðir. „Við hugsuðum aldrei um að gefast upp,“ segir Capdeville í viðtalinu.

Sara er nú komin sex mánuði á leið og samkvæmt Capdeville hefur meðgangan gengið vel. Parið hefur þegar ákveðið að sonurinn fái nafnið Tomás og er settur dagur í febrúar, skömmu eftir að Capdeville kemur heim frá heimsmeistaramótinu í handbolta sem fram fer í janúar.

Capdeville segist hafa ákveðið að segja sögu þeirra opinberlega í þeirri von að hjálpa öðrum sem hafa gengið í gegnum sambærilega reynslu. Hann segir fósturlát enn vera mikið feimnismál í samfélaginu og að margir sem lendi í slíkri reynslu upplifi sig eina og eigi erfitt með að ræða sorgina.

Portúgalinn vonast til að frásögn hans geti stuðlað að opnari umræðu og hjálpað öðrum fjölskyldum sem hafa gengið í gegnum sambærileg áföll.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top