Þýska B-deildarfélagið Nordhorn-Lingen íhugar að leggja fram formleg mótmæli vegna lokasekúndna leiks liðsins gegn TV Emsdetten um helgina. Leiknum lauk með 34-34 jafntefli eftir afar umdeilt jöfnunarmark heimamanna á lokasekúndunum. Elmar Erlingsson leikur með Nordhorn-Lingen. Nordhorn-Lingen leiddi 34-33 þegar Emsdetten fékk boltann í síðustu sókn leiksins. Þegar fimm sekúndur voru eftir var brotið á leikmanni Emsdetten en dómarar leiksins stöðvuðu ekki klukkuna fyrr en þremur sekúndum síðar. Þegar leikklukkan var loks stöðvuð voru því aðeins tvær sekúndur eftir af leiktímanum. Emsdetten fékk aukakast og Andre Meuser skoraði úr því með síðasta kasti leiksins og tryggði heimamönnum 34-34 jafntefli. Forráðamenn Nordhorn-Lingen eru hins vegar ósáttir við hvernig staðið var að tímamælingunni og telja vafa leika á því hvort jöfnunarmarkið hafi verið skorað innan leiktímans. Samkvæmt þýska miðlinum Sport Bild hafa forráðamenn Nordhorn-Lingen þegar komið á framfæri athugasemd við leikinn í opinberri leikskýrslu leiksins. Með því hefur félagið tryggt sér möguleika á að leggja fram formlega athugasemd innan 72 klukkustunda frá leikslokum. Málið gæti því endað á borði aganefndar þýska handknattleikssambandsins. Stigið sem Nordhorn-Lingen missti á lokasekúndunum gæti reynst liðinu afar dýrmætt. Félagið hefur þegar fengið sex stiga frádrátt vegna brota á leyfisskilyrðum deildarinnar og er því í erfiðri stöðu í fallbaráttunni. Þetta er ekki í fyrsta skipti á tímabilinu sem úrslit leiks í þýsku B-deildinni eru dregin í efa. Lübeck-Schwartau hefur einnig lagt fram mótmæli vegna leiks gegn Leipzig sem lauk með 33-32 sigri Leipzig. Nordhorn-Lingen hefur frest fram á þriðjudagskvöld til að leggja fram formlega kæru vegna atviksins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.