Danski landsliðsmarkvörðurinn Emil Nielsen er orðaður við Flensburg þrátt fyrir að hafa gengið til liðs við ungverska stórliðið Veszprém frá Barcelona í sumar. Emil Nielsen sem er af flestum talinn einn besti markvörður í heimi í dag hefur farið á kostum með Veszprém á þessu tímabili. Samkvæmt erlendum miðlum er Flensburg í viðræðum við Nielsen um möguleg félagaskipti. Samkvæmt orðrómnum gæti hann komið til þýska félagsins strax sumarið 2027. Nielsen er hins vegar samningsbundinn Veszprém til ársins 2029. Það verður að teljast ansi ólíklegt að félagaskiptin gangi í gegn næsta sumar enda yrði kaupverðið hátt og ungverska félagið tæplega tilbúið að láta markvörðinn fara eftir aðeins eitt tímabil. Nálægð Flensburg við Danmörku gæti þó gert félagið að spennandi kosti fyrir Nielsen til framtíðar. Núverandi markverðir liðsins, Simon Möller og Benjamin Burić, eru samningsbundnir til 2029 og 2028. Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu máli á næstu dögum en það yrði í það minnsta saga til næsta bæjar ef danski markvörðurinn myndi ganga í raðir Flensburg strax, næsta sumar á sama tíma og Viggó Kristjánsson gengur í raðir félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.