Jonathan Carlsbogård og Jim Gottfridsson verða ekki með sænska landsliðinu í fyrstu leikjum þess í undankeppni EM í nóvember. Michael Apelgren, landsliðsþjálfari Svía, tilkynnti hópinn í dag. Fjarvera þeirra á sér ólíkar skýringar. Carlsbogård, leikmaður Barcelona, gaf ekki kost á sér þar sem Apelgren gat ekki tryggt honum leiktíma í sókninni. „Hann gaf ekki kost á sér vegna þess að við getum ekki tryggt honum leiktíma í sókn. Ég skil hann og virði ákvörðun hans,“ sagði Apelgren á blaðamannafundi samkvæmt Handbollskanalen. Olle Forsell Schefvert, leikmaður Melsungen, kemur inn í hópinn í hans stað. Gottfridsson var hins vegar ekki valinn. Apelgren segir að aðrir leikmenn í sömu stöðu hafi staðið sig betur og séu því framar í goggunarröðinni. Gottfridsson sneri heim til uppeldisfélags síns, IFK Ystad í sænsku næstefstu deildinni, fyrir tímabilið. Hann telur sig enn eiga erindi í landsliðið. „Mér finnst ég enn vera nógu góður til að vera í landsliðinu,“ sagði Gottfridsson við Sportbladet. Báðir eru þó á 35 manna lista Svía fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar og landsliðsdyrnar því enn opnar. Lucas Pellas snýr jafnframt aftur í landsliðið eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Svíar mæta Grikkjum í Växjö 5. nóvember og Lúxemborg á útivelli þremur dögum síðar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.