Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, mun tilkynna landsliðshópinn fyrir fyrstu tvo leiki Íslands í undankeppni Evrópumótsins 2028 á blaðamannafundi á föstudaginn. Handknattleikssamband Íslands hefur boðað til blaðamannafundar föstudaginn 16. október klukkan 12:15 í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni. Þar mun Snorri Steinn kynna leikmannahópinn sem mætir Úkraínu og Eistlandi í fyrstu tveimur umferðum undankeppni EM 2028. Ísland hefur undankeppnina með heimaleik gegn Úkraínu í Laugardalshöll miðvikudaginn 4. nóvember áður en liðið heldur til Eistlands þar sem liðin mætast sunnudaginn 8. nóvember. Á blaðamannafundinum verður einnig farið yfir miðasölu á heimaleik Íslands gegn Úkraínu en miðasalan hefst um leið og fundinum lýkur. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á YouTube-rás HSÍ.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.