FH-ingar töpuðu á Madeira
J.L.Long

FH tapaði með átta marka mun fyrir Marítimo da Madeira, 37–29, í Evrópudeild karla í Portúgal í kvöld. FH-ingar lentu í miklum vandræðum í fyrri hálfleik og voru ellefu mörkum undir í hálfleik, 22–11.

FH náði að rétta úr kútnum eftir hlé og vann síðari hálfleikinn með þremur mörkum, 18–15. Brekkan eftir fyrri hálfleikinn var hins vegar of brött og Marítimo fagnaði að lokum öruggum 37–29 sigri.

Jón Bjarni Ólafsson, Einar Rafn Eiðsson og Símon Michael Guðjónsson voru markahæstir hjá FH með fjögur mörk hver. Ágúst Guðmundsson, Jakob Martin Ásgeirsson, Eiður Rafn Valsson og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu þrjú mörk hver.

Délcio Moreno de Pina var markahæstur í liði Marítimo með níu mörk og Jose Luciano Costa da Silva skoraði átta. Ruben Santos bætti við sjö mörkum fyrir heimamenn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top