Ungverska liðið Tatabánya var án þriggja lykilmanna þegar liðið tapaði fyrir Val 38-34 í 3. umferð Evrópudeildarinnar á Hlíðarenda í gærkvöldi. Vandræði Ungverjanna jukust enn frekar þegar rúmenska hægri skyttan Demis Grigoraș fékk rautt spjald eftir aðeins tíu mínútna leik. Ungverski landsliðsmaðurinn Richárd Bodó var ekki með Tatabánya vegna meiðsla en hann var einn þeirra leikmanna sem Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, hafði sérstaklega varað við í aðdraganda leiksins. Bodó hefur oft reynst íslenska landsliðinu erfiður og sagði Ágúst Þór í samtali við Handkastið fyrir leikinn að Valsmenn þyrftu að vera sérstaklega vel undirbúnir fyrir öflugar skyttur ungverska liðsins. Auk Bodó voru línumaðurinn Bence Szűcs og vinstri hornamaðurinn Baptiste Damatrin fjarverandi vegna meiðsla. Ekki bætti úr skák fyrir Tatabánya þegar Grigoraș fékk að líta rauða spjaldið á tíundu mínútu og því misstu Ungverjarnir enn einn mikilvægan leikmann úr sínum röðum. Valur nýtti sér þetta og vann að lokum fjögurra marka sigur 38-34 og fögnuðu sínum öðrum sigri í riðlakeppninni. Valur er því með fjögur stig í 2.sæti riðilsins en ungverska liðið er enn án stiga eftir fyrstu þrjá leikina. Slovan er á toppi riðilsins með sex stig og danska liðið, Mors Thy er með tvö stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.