Valur hefur unnið báða heimaleiki sína í riðlakeppni Evrópudeildar karla á þessu tímabili. Valur vann 38-34 sigur á ungverska liðinu Tatabánya á Hlíðarenda í gær en í 1.umferðinni vann liðið ellefu marka sigur á danska liðinu, Mors Thy. Valur hefur þrívegis tekið þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á síðustu fimm árum, tímabilin 2022/23, 2024/25 og nú í vetur. Á þeim tíma hefur liðið leikið tíu heimaleiki, unnið fimm þeirra, gert tvö jafntefli og tapað þremur. Síðasta tap Vals á heimavelli í riðlakeppninni kom gegn þýska liðinu Melsungen haustið 2024 þegar gestirnir höfðu betur, 33-28. Í kjölfarið gerðu Valsmenn 34-34 jafntefli gegn Vardar frá Norður-Makedóníu í síðasta heimaleik sínum það tímabil. Á yfirstandandi tímabili hafa Valsmenn hins vegar unnið báða heimaleiki sína. Fyrst vann liðið ellefu marka stórsigur á danska liðinu Mors-Thy, 39-28, áður en fjögurra marka sigur á Tatabánya bættist við í gær. Valur er nú með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leiki sína í H-riðli Evrópudeildarinnar og er í góðri stöðu í baráttunni um að komast áfram úr riðlinum. Heimaleikir Vals í riðlakeppni Evrópudeildarinnar síðustu fimm ár: 2022/23 2024/25 2026/27

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.