Sænski landsliðsmaðurinn Jonathan Carlsbogård hefur útskýrt hvers vegna hann hafnaði því að leika með sænska landsliðinu í komandi leikjum undankeppni EM. Leikmaður Barcelona er ósáttur við hlutverk sitt í landsliðinu og viðurkennir að ólíklegt sé að staðan breytist fyrir heimsmeistaramótið í janúar. Michael Apelgren, landsliðsþjálfari Svíþjóðar, tilkynnti í gær landsliðshópinn sem mætir Grikklandi og Lúxemborg í nóvember. Þar vakti athygli að hvorki Carlsbogård né Jim Gottfridsson voru í hópnum. Á meðan Gottfridsson var ekki valinn ákvað Carlsbogård sjálfur að hafna landsliðssætinu eftir samtal við Apelgren. Í viðtali við Handbollskanalen segir hinn 31 árs gamli Carlsbogård að hann vilji fá tækifæri til að sýna hvað í honum býr í sóknarleiknum í stað þess að vera nær eingöngu nýttur í varnarleik. „Ég hefði viljað fá meira traust en ég tel mig fá hjá Apelgren eins og staðan er núna. Ég lít á mig sem leikmann sem getur spilað bæði sókn og vörn og tel mig hafa nægilega mikla hæfileika til þess,“ segir Carlsbogård. Hann leggur þó áherslu á að hann sé ekki að krefjast ákveðins leiktíma. „Ég er ekki að biðja um tryggðan leiktíma heldur einfaldlega að fá tækifæri í sókninni eins og aðrir. Ég býst ekki við að spila 60 mínútur með landsliðinu. Ég vil bara fá tækifæri til að sýna að ég sé nógu góður.“ Carlsbogård segir að hlutverk hans í sóknarleik sænska landsliðsins hafi minnkað jafnt og þétt frá síðasta stórmóti. „Ég finn að ég fæ ekki að sýna allt sem í mér býr og allan minn leik. Þá verður heildarmyndin ekki eins góð, hvorki fyrir mig né liðið.“ Hann segist bera fulla virðingu fyrir ákvörðunum Apelgrens og að samskipti þeirra séu góð. Ágreiningurinn snúist eingöngu um það hlutverk sem honum standi til boða. Óvissa ríkir nú um hvort Carlsbogård verði með Svíum á heimsmeistaramótinu í janúar. Hann segir ólíklegt að staðan breytist mikið á þeim stutta tíma sem er til stefnu. „Það er mjög ólíklegt að eitthvað breytist á svona skömmum tíma. Þá verður staðan væntanlega sú sama eftir tvo mánuði,“ segir Carlsbogård. Hann útilokar þó ekki endurkomu í landsliðið ef honum verður boðið stærra hlutverk í sóknarleiknum. Apelgren hefur á sama tíma ákveðið að treysta á Felix Claar, Eric Johansson, Nikola Roganovic og Axel Månsson í sóknarleiknum. Olle Forsell Schefvert er hins vegar hugsaður sem sérstakur varnarmaður í hópnum. Carlsbogård, sem varð Evrópumeistari með Svíþjóð árið 2022, hefur verið einn af lykilmönnum landsliðsins undanfarin ár en gæti nú misst af heimsmeistaramótinu vegna ágreinings um hlutverk sitt. Markmenn:Sænski landsliðshópurinn
Fabian Norsten, Aalborg Håndbold
Mikael Appelgren, Vészprem
Simon Möller, SG Flensburg-Handewitt
Vinstra horn:
Lucas Pellas, GOG Håndbold
Emil Mellegård, PSG
Línumenn:
Max Darj, Füchse Berlin
Oscar Bergendahl, SC Magdeburg
Felix Möller, Aalborg Håndbold
Hægra horn:
Sebastian Karlsson, PSG
Daniel Pettersson, SC Magdeburg
Vinstri skyttur / miðjumenn:
Felix Claar, SC Magdeburg
Olle Forsell Schefvert, MT Melsungen
Nikola Roganovic, VfL Gummersbach
Axel Månsson, Skjern Håndbold
Eric Johansson, THW Kiel
Hægri skyttur:
Albin Lagergren, SC Magdeburg
Edwin Aspenbäck, Rhein-Neckar Löwen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.