Eigum ennþá töluvert inni
HSÍ / Mummi Lú

Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður með frammistöðu sinna manna eftir 38-34 sigur á ungverska liðinu Tatabánya í þriðju umferð Evrópudeildarinnar á Hlíðarenda í gær.

Valur hefur nú fjögur stig eftir fyrstu þrjá leiki sína í riðlakeppninni og hefur unnið báða heimaleiki sína.

„Ég er gríðarlega ánægður með leikmennina og liðið. Frammistaðan var góð heilt yfir í leiknum og varnarleikurinn var mjög góður stóran hluta af leiknum. Við náðum að keyra sérstaklega vel á þá í byrjun seinni hálfleiks,“ sagði Ágúst í samtali við Handkastið eftir leikinn.

Ágúst var sérstaklega ánægður með hversu margir leikmenn lögðu sitt af mörkum í sóknarleiknum og telur liðið vera á réttri leið.

„Sóknarleikurinn var vel útfærður og margir að leggja í púkkið þar. Við vorum að fá mörk úr mörgum stöðum og framlag frá mörgum leikmönnum sem er gríðarlega mikilvægt. Mér fannst góður liðsheildarbragur á okkur og við erum hægt og rólega að sigla í rétta átt.“

Þrátt fyrir góð úrslit í Evrópudeildinni telur Valsþjálfarinn að liðið eigi enn töluvert svigrúm til bætinga.

„Gæðin eru að verða betri og heildarmyndin á liðinu er að verða betri en við eigum ennþá töluvert inni og höldum áfram að bæta okkur leik frá leik.“

Varnarlega tókst Valsmönnum vel að takmarka ógnina frá skyttum ungverska liðsins að mati Ágústs.

„Varnarlega þá náðum við að mæta skyttunum þeirra framarlega, bæði örvhentu og vinstri skyttunni. Það var mjög gott og síðan náðum við að þétta vel á miðjumennina sem eru flinkir leikmenn og góðir að klippa inn skytturnar þeirra. Við náðum að loka vel á það.“

Nú tekur við hlé á Evrópudeildinni og næsta verkefni Valsmanna verður gegn Víkingi 6.umferð í Olís-deildar karla.

„Fyrst og fremst er ég ánægður með þessi tvö stig og er ánægður að vera kominn með fjögur stig í riðlinu og vinna báða heimaleikina. Nú kemur smá pása í þessari keppni sem er fínt og nú tekur við undirbúningur fyrir næsta leik gegn Víking. Víkingarnir hafa verið að leika vel og hafa sýnt góða frammistöðu á tímabilinu,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top