Tvö Íslendingalið áttu leik í kvöld, eitt í Danmörku og eitt í Noregi. Horsens mætti Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni kvennamegin á meðan Drammen fór í heimsókn til Kristiansand í norsku úrvalsdeildinni. Ísak Steinsson var sem fyrr í liði Drammen sem mætti Kristiansand. Fyrir leikinn voru heimamenn í áttunda sæti með fimm stig á meðan Drammen voru í ellefta sæti með fjögur stig. Heimamenn voru ívið sterkari í fyrri hálfleik og leiddu með þremur mörkum að loknum hálfleiknum, 15-12. Gestirnir frá Drammen gerðu hvað þeir gátu en náðu ekki að jafna leikinn og töpuðu að lokum með þremur mörkum, 30-27. Ísak varði fimm skot af þeim nítján sem hann fékk á sig eða 26% markvarsla. Horsens sótti frábæran útisigur til Silkeborg með minnsta mun í dönsku úrvalsdeildinni en lokatölur urðu 28-29. Katrín Tinna Jensdóttir var í liði Horsens og klikkaði á eina skoti sínu í leiknum. Mikilvægur sigur fyrir Horsens sem sitja í níunda sæti með sex stig og er stutt í næstu lið fyrir ofan. Úrslit kvöldsins: Kristiansand 30-27 Drammen Silkeborg 28-29 Horsens

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.