Valsarnir atkvæðamiklir í Austurríki og Norður-Makedóníu
Alkaloid

Valsarnir, Tumi Steinn Rúnarsson og Úlfar Páll Monsi Þórðarson voru báðir í eldlínunni með liðum sínum í Austurríki og Norður-Makedóníu í kvöld.

Tumi Steinn skoraði sex mörk þegar Bärnbach/Köflach gerði jafntefli við Krems á útivelli, 28–28, í 7. umferð austurrísku úrvalsdeildarinnar. Hann var markahæstur hjá gestunum ásamt Pavle Petrovic.

Bärnbach/Köflach er í sjöunda sæti deildarinnar með sjö stig eftir sjö leiki. Liðið hefur nú leikið þrjá deildarleiki í röð án taps eftir sigra í síðustu tveimur leikjum.

Í Norður-Makedóníu skoraði Úlfar Páll Monsi fimm mörk þegar Alkaloid vann öruggan heimasigur á Struga, 33–22. Heimamenn höfðu átta marka forskot í hálfleik, 16–8, og sigurinn var aldrei í hættu.

Alkaloid komst þar með aftur á sigurbraut eftir tap gegn Ohrid í síðustu umferð. Næsta leikur liðsins er heimaleikur gegn austurríska liðinu Ferlach í Evrópubikarnum á laugardaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top