Baldur Fritz Bjarnason, leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Kristianstad, var valinn í lið 5. umferðar Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir frábæra frammistöðu gegn portúgalska stórliðinu Sporting. Baldur Fritz átti stórleik í liði Kristianstad þrátt fyrir tap gegn Sporting en hann skoraði ellefu mörk í leiknum og var einn af áberandi leikmönnum vallarins. Frammistaða hans vakti athygli og skilaði honum sæti í liði umferðarinnar í sterkustu félagsliðakeppni Evrópu. Valið er mikil viðurkenning fyrir Baldur Fritz sem hefur fengið tækifæri til að sýna sig á stærsta sviði evrópsks félagsliðahandbolta með Kristianstad á tímabilinu. Baldur Fritz, sem er aðeins 18 ára gamall, skoraði mörkin ellefu úr þrettán skotum og var markahæstur leikmanna Kristianstad í leiknum sem Sporting vann 42-40 eftir mikla markaveislu í Portúgal. Baldur Fritz skoraði fimm mörk í fyrri hálfleik og hélt áfram að láta til sín taka eftir hlé. Kristianstad tókst að halda spennu í leiknum allt fram á lokamínúturnar en Sporting hafði að lokum betur. Fjórir aðrir Íslendingar komu við sögu hjá Kristianstad. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði þrjú mörk, Ólafur Guðmundsson tvö og Andri Erlingsson eitt. Orri Freyr Þorkelsson var einnig í leikmannahópi Sporting en komst ekki á blað. Lið 5. umferðar Meistaradeildarinnar: Miłosz Wałach – Vardar
Lukas Mertens – Magdeburg
Philipp Weber – Magdeburg
Baldur Fritz Bjarnason – Kristianstad
Francisco Costa – Sporting
Ferran Solé - PSG
Théo Monar – Kielce

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.