Verða þrír dómarar á Ólympíuleikunum 2032?
Egill Bjarni Friðjónsson

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, heldur áfram tilraunum með þrjá dómara í handboltaleikjum í stað þeirra tveggja sem hafa verið við lýði um árabil. Fyrirkomulagið er nú prófað á heimsmeistaramóti U16 ára landsliða kvenna sem fram fer í Agadir í Marokkó. Þar dæma þrír dómarar alla leiki mótsins.

Tilgangurinn með breytingunni er að auka yfirsýn dómara yfir leikinn og auðvelda þeim að taka réttar ákvarðanir í íþrótt þar sem hraðinn hefur aukist mikið á undanförnum árum.

Samkvæmt IHF getur dómari þurft að taka yfir 200 ákvarðanir í einum handboltaleik og telur sambandið að þriðji dómarinn geti hjálpað til við að fylgjast með atvikum sem annars gætu farið fram hjá dómurum.

Tilraunirnar hófust árið 2022 á heimsmeistaramóti félagsliða karla, Super Globe, og hefur fyrirkomulagið síðan verið prófað á fleiri mótum. Á síðasta ári voru þrír dómarar meðal annars notaðir á öllum leikjum heimsmeistaramóts nýrra handboltaþjóða og á HM U17 ára karla í Marokkó.

Samkvæmt franska handknattleiksmiðlinum HandNews hefur IHF áður lýst þeim metnaði að þróa fyrirkomulagið áfram með það að markmiði að þrír dómarar gætu orðið að veruleika á Ólympíuleikunum í Brisbane árið 2032.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top