Wiegert missti þolinmæðina þrátt fyrir sigur
Frank Hoermann

Bennet Wiegert, þjálfari þýsku meistaranna í SC Magdeburg, lét sína menn heyra það í 35-32 útisigri liðsins gegn norska liðinu Kolstad í Meistaradeild Evrópu á fimmtudagskvöldið. Þrátt fyrir sigurinn var Wiegert langt frá því að vera ánægður með frammistöðu sinna manna í upphafi leiks.

Magdeburg hefur farið vel af stað í Meistaradeildinni og unnið alla fimm leiki sína til þessa.

Leikurinn gegn Kolstad hafði litla þýðingu fyrir liðin þar sem Magdeburg hafði þegar tryggt sér sæti í næstu umferð með fullt hús stiga á meðan norska liðið var úr leik.

Fyrirliðinn Magnus Saugstrup var fjarverandi af persónulegum ástæðum og Bennet Wiegert ákvað að nýta tækifærið til að gefa fleiri leikmönnum tækifæri.

Hinn 18 ára gamli Tim Thielicke fékk meðal annars tækifæri í byrjunarliðinu.

Magdeburg byrjaði leikinn illa og eftir fimmtán mínútna leik var liðið 9-7 undir.

Wiegert var allt annað en sáttur við það sem hann sá og tók leikhlé þar sem hann lét leikmenn sína heyra það.

„Strákar, vandamálið erum við sjálfir. Og það er það sem gerir mig svo reiðan. Hvar er útgeislunin okkar? Hvar er baráttuviljinn?“ sagði Wiegert samkvæmt þýska miðlinum BILD.

Skammir Wiegert virtust skila tilætluðum árangri því Magdeburg tók völdin í leiknum eftir hlé og tryggði sér að lokum þriggja marka sigur, 35-32.

Markvörðurinn Dominik Kuzmanović átti góðan leik og Philipp Weber fór mikinn í sóknarleiknum.

Weber var markahæstur með ellefu mörk og átti stóran þátt í því að Magdeburg tryggði sér sigurinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top