Ágúst Elí skellti í lás þegar KA kjöldró FH í Krikanum
J.L.Long

KA gerði góða ferð í Hafnarfjörð og vann sex marka sigur á FH, 33-39, í Olís-deild karla í kvöld. Dagur Árni Heimissonskoraði tólf mörk fyrir KA og Ágúst Elí Björgvinsson varði tuttugu skot. KA fór upp fyrir FH með sigrinum og eru í 2.sæti deildarinnar með 12 stig, jafn mörg stig og Valur.

KA-menn tóku frumkvæðið strax í upphafi, skoruðu fyrstu tvö mörkin og komust í 3-8. FH náði að minnka muninn í tvö mörk, 15-17, en gestirnir héldu forystunni og leiddu 17-20 í hálfleik.

Í síðari hálfleik jók KA forskotið jafnt og þétt. Gestirnir komust í 20-27 og síðar varð munurinn níu mörk, 26-35. FH náði að laga stöðuna undir lokin en sigur KA var öruggur.

FH er eftir leikinn í kvöld í 5.sæti deildarinnar með 11 stig, jafn mörg stig og Afturelding sem er í 4.sætinu.

Dagur Árni var markahæstur KA-manna með tólf mörk, Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði sjö og Arnór Ísak Haddsson fimm. Ágúst Elí varði tuttugu skot og Bruno Bernat eitt.

Hjá FH var Ómar Darri Sigurgeirsson markahæstur með sex mörk. Brynjar Narfi Arndal, Jón Bjarni Ólafsson og Leonharð Þorgeir Harðarson skoruðu fimm mörk hver. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði fimm skot og Ólafur Rafn Gíslason þrjú.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top