ÍBV sneri taflinu við í síðari hálfleik
Eyjólfur Garðarsson

ÍBV vann mikilvægan tveggja marka sigur á Gróttu, 26-24, í lokaleik 7. umferðar Olís-deildar kvenna í Kórnum í dag. Eyjakonur lentu undir í fyrri hálfleik en sýndu styrk sinn í þeim síðari og tryggðu sér að lokum bæði stigin.

Lykilmenn vantaði í bæði lið í leiknum í dag. Grótta var án Ídu Margrétar Stefánsdóttur á meðan Birna Berg Haraldsdóttir var fjarri góðu gamni í liði ÍBV. Dagmar Guðrún Pálsdóttir lék sinn fyrsta leik með Gróttu eftir að hafa gert lánsskipti til félagsins frá Fram í vikunni.

Grótta byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 5-1 snemma leiks. Heimakonur héldu frumkvæðinu lengst af í fyrri hálfleik og náðu mest fjögurra marka forskoti. Staðan í hálfleik var 14-12, Gróttu í vil.

Gróttukonur byrjuðu síðari hálfleikinn einnig vel og komust í 17-12 en þá tóku Eyjakonur við sér. ÍBV skoraði sex af næstu sjö mörkum leiksins og jafnaði metin í 18-18.

Í kjölfarið tók við spennandi kafli þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna. Þegar leið á síðari hálfleikinn náðu Eyjakonur hins vegar undirtökunum og komust í 24-21. Grótta náði ekki að brúa bilið þrátt fyrir að hafa minnkað muninn í tvö mörk undir lokin og ÍBV fagnaði að lokum 26-24 sigri.

Ásdís Halla Hjarðar var markahæst í liði ÍBV með sjö mörk og Andrea Jacobsen skoraði fimm. Þá skoruðu Ásta Björt Júlíusdóttir, Birna María Unnarsdóttir og Sandra Erlingsdóttir fjögur mörk hver.

Hjá Gróttu var Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir markahæst með fimm mörk en Dagmar Guðrún Pálsdóttir og Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor.

Andrea Gunnlaugsdóttir átti stórleik í marki Gróttu og varði 17 skot en það dugði ekki til að tryggja heimakonum stig. Hjá ÍBV varði Ólöf Maren Bjarnadóttir sjö skot og Cornelia Linnea J. Hermansson þrjú.

Með sigrinum er ÍBV áfram í öðru sæti Olís-deildarinnar með 12 stig eftir sjö leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka sem hefur unnið alla sjö leiki sína til þessa. Grótta situr hins vegar í sjöunda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir sjö umferðir, líkt og KA/Þór sem er í áttunda sæti.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top