KA/Þór vann þriggja marka sigur á HK, 27-24, í Olís-deild kvenna í Kórnum í kvöld. Jafnræði var með liðunum lengst af en gestirnir frá Akureyri reyndust sterkari á lokakaflanum og tryggðu sér bæði stigin. KA/Þór byrjaði leikinn betur og komst í 2-0 áður en HK jafnaði í 3-3. Heimakonur náðu í kjölfarið yfirhöndinni og komust í 8-3 eftir tæplega 19 mínútna leik. Gestirnir svöruðu hins vegar með góðum kafla og skoruðu sjö mörk gegn einu hjá HK. KA/Þór komst yfir í 10-9 og leiddi síðan 11-10 áður en Rakel Sara Ágústsdóttir jafnaði metin í 11-11 rétt fyrir leikhlé. Síðari hálfleikurinn byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri endaði. Liðin skiptust á að hafa forystuna og staðan var jöfn, 15-15, eftir rúmlega 39 mínútna leik. KA/Þór náði tveggja marka forskoti í 18-16 en HK svaraði og jafnaði í 18-18. Gestirnir náðu aftur frumkvæðinu og komust í 21-19 áður en heimakonur minnkuðu muninn í eitt mark. Þegar rúmar sjö mínútur voru eftir var staðan 22-22. Þá tók KA/Þór góðan sprett og skoraði fjögur mörk í röð og komst í 26-22. HK náði að minnka muninn í 26-24 en Agatha Kjærbæk Djurhuus skoraði síðasta mark gestanna áður en Tinna Ósk Gunnarsdóttir skoraði lokamark leiksins. Lokatölur urðu 27-24 fyrir KA/Þór. Tinna Dröfn Hauksdóttir og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir voru markahæstar hjá HK með fimm mörk hvor. Sóley Ívarsdóttir skoraði fjögur mörk. Danijela Sara B. Björnsdóttir varði fjögur skot í marki HK. Hjá KA/Þór voru Lydía Gunnþórsdóttir og Sólveig Lára Kristjánsdóttir markahæstar með sjö mörk hvor. Agatha Kjærbæk Djurhuus og Joan Rúnadóttir Johannesen skoruðu fjögur mörk hvor. Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir varði ellefu skot í marki gestanna. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.