Markmiðið að vera atvinnumaður í bestu deildum heims og spila með landsliðinu
Egill Bjarni Friðjónsson

Það er ekki oft sem við sjáum skyttur yfir 2 metra koma fram á sjónarsviðið í íslenskum handbolta. Og hvað þá örvhentar skyttur.

Hinn 19 ára gamli Ævar Smári Gunnarsson hjá Aftureldingu er það hins vegar. Hann er 205 cm á hæð og hefur verið að taka miklum framförum síðastliðin ár.

Ævar Smári hefur farið ágætlega af stað með Aftureldingu á þessu leiktímabili. Hann er með rúmlega 70% prósent skotnýtingu og er með 26 mörk í 9 leikjum. Mörg hver langt utan af velli með bylmingsskotum.

Handkastið heyrði aðeins í Ævari Smára og fékk hann til að segja okkur frá hinu og þessu.

"Tímabilið hefur farið mjög vel af stað, það var góður undirbúningur hjá liðinu á
undirbúningstímabilinu. Við lögðum mikinn metnað í lyftingum hjá nyjum styrktarþjálfara
sem er mjög góður. Áttum góða æfingaleiki á Hafnarfjarðarmótinu sem gekk vel
"

"Hópurinn er mjög þéttur og góður með mikinn metnað að gera vel í vetur. Hrannar og Diddi
eru að gera frábæra hluti að mínu mati. Diddi er að koma með mjög góða punkta um vörn
sem hjálpar mikið"

"Það sem hefur hjálpað mér á þessu tímabili er að ég er orðinn léttari og sterkari. Ég hef mist
u.þ.b 22kg frá janúar í fyrra. Ég var 136 kg ca. og er 114 kg núna. Það er léttara að halda
uppi tempóinu sem er hér og spila vörn. En það er Gunna Magg og Stebba Árna að þakka
fyrir að taka mig á fund og láta mig vita að það er ekki hægt að vera of þungur og ná langt.
Þannig ég fór bara beint í það að leita af þjálfara sem gat hjálpað mér og ég vigtaði hvert
einasta gramm upp í mig í heilt ár. Sem kenndi mér helling um mat og hvað það þarf að
leggja mikið á sig til að vera í formi"

"Markmiðið mitt er að verða atvinnumaður í bestu deildum heims og spila með landsliðinu. En
markmiðið á þessu tímabili er að keppast og vinna alla titla sem eru í boði"
sagði þessa unga og efnilega stórskytta að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top