Það var sætt fyrir mig að vinna FH
Egill Bjarni Friðjónsson

Ágúst Elí Björgvinsson fór á kostum í marki KA þegar liðið vann frábæran sigur á FH í Kaplakrika í 8. umferð Olís-deildar karla í gær. Markvörðurinn reyndist sínum gömlu félögum erfiður ljár í þúfu og átti stóran þátt í mikilvægum sigri Akureyringa.

KA vann leikinn 39-33 en Ágúst Elí sem er uppalinn hjá FH, viðurkennir að það hafi verið sérstaklega ljúft að leggja sitt gamla félag að velli.

„Þetta var hrikalega góður og mikilvægur sigur hjá okkur. Við undirbjuggum okkur vel fyrir leikinn og vissum við hverju mætti búast. Ómar Darri er búinn að vera mjög heitur og Brynjar Narfi í rauninni líka. En við lögðum upp með að vera fastir fyrir í vörn og skapa góða stemningu út frá því.“

„Sóknarlega héldum við í það sem við ætluðum að gera, spila saman sem lið og klára okkar færi. Við uppskárum út frá því og það var líka sætt fyrir mig að vinna FH, mitt uppeldisfélag,“ sagði Ágúst Elí í samtali við Handkastið.

Ágúst Elí átti stórleik á milli stanganna og var 21 skot varið og var með 44% markvörslu. Hann segir sjálfur að það sem hafi staðið upp úr hafi verið hversu stöðug frammistaða hans var allan leikinn. Hann hrósaði jafnframt varnarleik KA sem gerði honum auðveldara fyrir í markinu.

„Leikurinn hjá mér var einstaklega góður, mér fannst frammistaðan vera jöfn yfir allan leikinn. Þetta voru ekkert einhverjar skorpur hér og þar og vörnin hjálpaði mikið til með það. Það hjálpaði mér mikið að vörnin lokaði vel á fallbyssuna hjá Ómari Darra.“

„Þetta var hrikalega góður sigur og skemmtilegur leikur að spila í Kaplakrika, gegn sterku liði FH.“

KA hefur sýnt á sér tvær hliðar í upphafi tímabilsins. Liðið hefur á köflum leikið frábæran handbolta en þess á milli hafa komið slakir kaflar. Ágúst Elí segir að leikmenn séu meðvitaðir um þetta og vinni markvisst að því að ná meiri stöðugleika. KA er í 2.sæti deildarinnar með 12 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Hauka.

„Við erum búnir að vera á pari finnst mér. Við höfum átt góðar syrpur og nokkrar svakalega lélegar syrpur. En það þýðir ekkert að dvelja við töpin en við höfum reynt að læra af þeim.“

„Mér finnst við hafa verið skarpir í þeim hugsunarhætti og haldið fókus. Við vitum að við erum með ansi hátt þak og ansi lágt gólf ef það er hægt að segja það. Við erum að reyna að minnka þessar sveiflur og reyna að halda okkar plani.“

„Við erum á góðri leið með það," bætti Ágúst Elí við.

Næsta verkefni KA er sannkallaður stórleikur þegar Haukar mæta norður á Akureyri á laugardaginn í 9. umferð Olís-deildarinnar.

Ágúst Elí, sem lék með Ribe Esbjerg í Danmörku áður en hann gekk til liðs við KA, hlakkar mikið til viðureignarinnar og vonast eftir frábærri stemningu í KA-heimilinu. Ágúst Elí ólst upp hjá erkfjéndum Haukum, FH.

„Fyrir mig, þá eru Haukar alltaf Haukar. Það er mikil tilhlökkun hjá mér fyrir því að spila þennan leik og hjá öllum í liðinu.“

„Við viljum sjá sem flesta í KA-heimilinu og reyna að fylla þennan kofa og skapa virkilega góða stemningu í þessum toppslag,“ sagði Ágúst Elí að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top