Stefnir á tuttugasta tímabilið hjá sama félaginu
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP

Danska úrvalsdeildarfélagið Skjern Håndbold hefur framlengt samning sinn við hinn reynslumikla hægri hornamann René Rasmussen til sumarsins 2028. Rasmussen stefnir þar með á að leika sitt tuttugasta tímabil með félaginu.

Rasmussen hefur verið einn af lykilmönnum Skjern um árabil og er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins.

Félagið tilkynnti á föstudaginn að samningur hans hefði verið framlengdur um eitt ár, en fyrri samningur gilti til sumarsins 2027.

Rasmussen segist enn hafa mikinn metnað fyrir hönd félagsins og engan veginn vera tilbúinn að leggja handboltaskóna á hilluna.

„Mér finnst ég enn geta lagt mitt af mörkum og ég hef enn jafn gaman af því að spila og öllu því sem fylgir því að vera atvinnumaður í handbolta.“

„Tuttugu tímabil hjá Skjern er eitthvað sem mig hefði aldrei órað fyrir. Ég er gríðarlega stoltur af því. Á sama tíma hef ég enn mikinn metnað fyrir því að vinna fleiri verðlaun í grænu treyjunni,“ sagði Rasmussen á heimasíðu Skjern.

Þótt Rasmussen sé orðinn einn af elstu leikmönnum Skjern hefur hann ekki tekið ákvörðun um hvenær ferlinum lýkur.

Hann viðurkennir að eðlilegt sé að hugsa um hvenær rétti tíminn komi til að hleypa yngri leikmönnum að.

„Ég er einn af þeim elstu í liðinu og auðvitað hugsar maður um hvenær maður eigi að afhenda keflið áfram. Það kemur að því að þessu lýkur en ég hef ekki fundið þann tímapunkt enn þá.“

„Kannski verður þetta síðasta samningsframlengingin mín og kannski held ég áfram enn lengur. Það eina sem ég veit er að ég elska að vera hluti af Skjern og hlakka til að upplifa enn fleiri góðar stundir í treyju félagsins,“ sagði Rasmussen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top