Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp handboltahelgina hér heima og erlendis. Strákarnir Okkar spila í vikunni í Laugardagshöllinni og eru örfáir miðar ennþá til sölu. Arnar Pétursson vonast eftir að fá að halda vegferðinni áfram með kvenna landsliðið. Landsliðsstrákar orðaðir við hin og þessi félög í Evrópu. Haukar fóru illa með KA í toppslagnum. Fáliðaðir Eyjamenn unnu frábæran sigur á Stjörnunni. Vandræði Frammara halda áfram eftir tap gegn Víking. Eyjakonur unnu Gróttu án Birnu Berg. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.