Ýmir Örn Gíslason verður ekki með íslenska karlalandsliðinu í leikjunum gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028 í vikunni. Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, staðfesti þetta í samtali við Handkastið. Ýmir Örn gekkst undir aðgerð á hendi eftir að hafa handarbrotnaði í leik með Göppingen og hefur enn ekki náð sér að fullu. Vonir stóðu til að Ýmir væri orðinn leikfær fyrir landsleikina. Snorri Steinn sagði í viðtali við Handkastið að það væri óljóst hvort hann myndi bæta við öðrum leikmanni í hópinn. Ljóst er að Elliði Snær Viðarsson leikur ekki gegn Eistlandi um næstu helgi vegna persónulegrar ástæðna og staðfesti Snorri að það myndi ekki breytast þrátt fyrir meiðsli Ýmis. Ýmir Örn er mættur til landsins og sagði í samtali við Handkastið í morgun þar sem landsliðið kom saman í undirbúningi sínum að hann myndi nýta næstu daga til að vera í meðhöndlun hjá íslenskum læknum en hann fór í myndatöku í morgun. Hann heldur svo aftur til Þýskalands á fimmtudaginn. Íslenski landsliðshópurinn kom saman til æfinga í Safamýri í dag. Fyrri leikur vikunnar verður gegn Úkraínu í Laugardalshöll miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 19:30. Síðan heldur liðið til Eistlands þar sem þjóðirnar mætast sunnudaginn 8. nóvember. Þetta eru fyrstu tveir leikir Íslands í undankeppni EM 2028 en Serbía er einnig með íslenska liðinu í riðli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.