Haukur Þrastarson landsliðsmaður og leikmaður Rhein-Neckar Löwen, er orðaður við þýsku stórliðin THW Kiel og Gummersbach samkvæmt heimildum Handkastsins. Haukur hefur verið orðaður við brottför frá Löwen næsta sumar en félögin tvö eru meðal þeirra sem horfa til íslenska landsliðsmannsins. Handkastið greindi frá því fyrr í dag að samkvæmt umfjöllun þýska blaðsins Bild gæti verið sérstakt ákvæði í samningi Hauks sem tengist þjálfaraskiptum hjá Löwen. Maik Machulla var látinn taka pokann sinn í október eftir erfiða byrjun liðsins á tímabilinu. HAUKUR SAGÐUR MEÐ SÉRSTAKT ÁKVÆÐI Í SAMNINGI SÍNUM Haukur framlengdi samning sinn við Löwen í maí síðastliðnum til sumarsins 2028. Ekki hefur verið staðfest að umrætt ákvæði sé í samningi hans eða hvaða áhrif það gæti haft á möguleg félagaskipti. Erfiðlega hefur gengið hjá Löwen að undanförnu. Liðið tapaði fjórða deildarleiknum í röð þegar það laut í lægra haldi fyrir Hamburg, 28-23, á föstudagskvöldið. Haukur skoraði þrjú mörk og gaf fimm stoðsendingar í leiknum. Löwen situr í 13. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir tíu leiki og óvissa ríkir um framtíð nokkurra leikmanna félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.