Bræðraslagur verður á hliðarlínunni þegar Víkingur og Stjarnan mætast í lokaleik umferðarinnar í Olís-deild karla á sunnudaginn. Aðalsteinn Eyjólfsson stýrir Víkingum en Sverrir Eyjólfsson er við stjórnvölinn hjá Stjörnunni. Leikurinn verður sýndur beint á Livey. Viðureignin var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Stymmi klippari kallaði eftir því að fleiri úr fjölskyldunni kæmu að leiknum. „Ef við fáum ekki Eyjólf Braga og Katrínu dóttur hans til að lýsa þessu þá verð ég illa svikinn. Verður Hrannar Bragi Eyjólfsson í hóp? Ég veit allavegana að Aðalsteinn Eyjólfsson verður á öðrum bekknum og Sverrir Eyjólfsson á hinum.“ Stymmi benti á að yngsti bróðirinn, Hrannar Bragi, hefði einnig verið í leikmannahópi Stjörnunnar í vetur. Hann hrósaði jafnframt Víkingum fyrir byrjun þeirra á tímabilinu en liðið hefur safnað sex stigum. „Gervigreindin getur ekki sagt okkur hvenær Víkingur hélt sér síðast uppi í efstu deild en þeir hafa allavegana ekki verið með sex stig í nóvember þau skipti sem þeir hafa fallið, ég get alveg lofað ykkur því. Þetta er ein besta byrjun Víkinga í efstu deild í manna minnum,“ sagði Stymmi. Davíð Már Kristinsson spáði Víkingum sigri og sagðist hrifinn af því sem liðið hefði sýnt. „Ég held að stóri bróðirinn hafi betur í þessum leik. Víkingarnir hafa verið mjög flottir og hafa verið að ná miklu úr mörgum leikmönnum. Auðvitað hafa Stjörnumenn sótt fimm stig og Ísak Logi hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar. Sigurður Dan hefur einnig verið frábær í markinu.“ Davíð taldi Víkinga þó standa framar fyrir viðureignina. „Ég reikna með Víkingssigri, mér finnst þeir vera komnir framar og lengra,“ sagði Davíð Már. Björn Ingi Jónsson taldi einstaklingsgæði geta orðið Stjörnumönnum mikilvæg í baráttunni við Víkinga. „Það eina sem Stjarnan hefur fram yfir Víkingana eru einstaklingsgæði og helst í Ísaki sem gæti gert gæfumuninn,“ sagði Björn Ingi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.