Víkingur og FH mættust í Víkinni í leik sem var að ljúka í elleftu umferð Olís deildar karla. Gestirnir úr Hafnarfirðinum voru ekki í neinum vandræðum með Víkingana í kvöld en gestirnir voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15-19. Gestirnir keyrðu áfram á heimamenn og lönduðu að lokum góðum sjö marka sigri en lokatölur voru 35-42 fyrir Fimaleikafélag Hafnarfjarðar. FH er í öðru sæti deildarinnar með sautján stig á meðan Víkingur er í áttunda sæti deildarinnar með sjö stig. Atkvæðamestur í liði Víkinga í kvöld var Ísak Óli Eggertsson en hann skoraði sjö mörk. Sigurður Páll Matthíasson skoraði sex mörk. Jón Karl Einarsson og Ásgeir Snær Vignisson skoruðu báðir fimm mörk og aðrir minna. Atkvæðamestir í liði FH voru Jón Bjarni Ólafsson og Bjarni Narfi Arndal en þeir skoruðu báðir sjö mörk. Ómar Darri Sigurgeirsson og Ágúst Guðmundsson skoruðu báðir sex mörk. Eiður Rafn Valsson, Einar Rafn Eiðsson og Ingvar Dagur Gunnarsson skoruðu allir fjögur og aðrir minna. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.