Stjarnan vann mikilvægan sigur á botnliðinu
Sævar Jónasson

Stjarnan og Selfoss mættust í Garðabænum í leik sem var að ljúka í elleftu umferð Olís deildar karla en þetta eru tvö neðstu lið deildarinnar. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og Stjarnan var einu marki yfir í hálfleik, 16-15.

Stjarnan var ekki að gefa þetta forskot eftir og voru lengi vel tveimur mörkum yfir en um miðjan síðari hálfleik komst Stjarnan fjórum mörkum yfir.

Gestirnir neituðu að gefast upp og náðu að minnka muninn niður í eitt mark en nær komust gestirnir ekki og Stjarnan svöruðu áhlaupi gestanna og lönduðu að lokum fimm marka sigri en lokatölur í Hekluhöllinni voru 35-30 fyrir Stjörnunni. Þessi úrslit þýða að Stjarnan er enþá í fallsæti deildarinnar en eru með jafn mörg stig og Þór og HK sem koma í næstu sætum en Selfoss er á botni deildarinnar og liðið á enþá eftir að vinna leik á tímabilinu.

Atkvæðamestur í liði Stjörnunnar var Gauti Gunnarsson en hann skoraði sjö mörk í kvöld. Daníel Karl Gunnarsson skoraði sex mörk. Bjarki Jóhannsson skoraði fimm mörk. Dagur Sverrir Kristjánsson, Matthías Dagur Þorsteinsson og Tandri Már Konráðsson skoruðu allir fjögur mörk og aðrir minna.

Atkvæðamestur í liði Selfoss var Hákon Garri Gestsson en hann skoraði átta mörk. Hannes Höskuldsson skoraði fimm mörk og Valdimar Örn Ingvarsson fjögur mörk og aðrir minna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top