Valur missti sigurinn úr greipum sér
Jón Gautur Fótó

Valur mátti sætta sig við grátlegt tap gegn Tatabánya, 29–28, í Evrópudeild karla í Ungverjalandi í kvöld. Heimamenn skoruðu sigurmarkið skömmu fyrir leikslok eftir að Valsmenn höfðu haft yfirhöndina en Valur voru meðal annars 28-26 yfir þegar lítið var eftir.

Valsmenn byrjuðu leikinn vel og komust í 8–4 og síðar 10–7. Heimamenn náðu hins vegar að snúa taflinu við fyrir hálfleik og gengu til búningsherbergja með tveggja marka forskot, 14–12.

Valur náði yfirhöndinni á ný í síðari hálfleik en tókst ekki að landa sigrinum. Tatabánya reyndist sterkari á lokasprettinum og tryggði sér bæði stigin með sigurmarki skömmu fyrir leikslok en liðið skoraði tvö síðustu mörk leiksins.

Stiven Tobar Valencia lék sinn fyrsta leik með Val eftir endurkomuna til félagsins og skoraði þrjú mörk úr jafnmörgum skotum.

Arnór Snær Óskarsson var markahæstur Valsmanna með átta mörk og Gunnar Róbertsson skoraði sjö. Bjarni í Selvindi bætti við fimm mörkum en þeir Stiven og Jón Ásgeir Eyjólfsson skoruðu þrjú mörk hvor. Daníel Montoro og Dagur Leó Fannarsson gerðu sitt markið hvor.

Hjá Tatabánya voru Dániel Sztraka og Robin Molnár markahæstir með fimm mörk hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top