Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var gríðarlega svekktur eftir eins marks tap liðsins gegn ungverska liðinu Tatabánya á útivelli í Evrópudeild karla í kvöld. Ágúst var ánægður með frammistöðu sinna manna og taldi Val eiga skilið að fá að minnsta kosti eitt stig úr leiknum. Hann var jafnframt ósáttur við dómgæsluna í síðari hálfleik. Valur missti sigurinn úr greipum sér „Gríðarlega svekkjandi tap á erfiðum útivelli. Mér fannst drengirnir spila heilt yfir mjög vel. Varnarleikurinn og í rauninni var sóknarleikurinn mjög góður fyrir utan 10–12 mínútna kafla í fyrri hálfleik. Frammistaðan var góð og við áttum skilið að fá eitthvað meira út úr þessum leik, í það minnsta eitt stig og jafnvel bæði miðað við hvernig leikurinn var að þróast,“ sagði Ágúst í samtali við Handkastið eftir leikinn. Valsmenn voru lengst af vel inni í leiknum og að mati Ágústs var frammistaðan nægilega góð til þess að liðið hefði getað farið heim með bæði stigin. Hann var þó sérstaklega ósáttur við hvernig dómarar leiksins dæmdu leiktöf í síðari hálfleik og taldi Valsmenn hafa fengið mun skemmri tíma til að byggja upp sóknir sínar en heimamenn. „Í seinni hálfleik var ótrúlega skrítin lína sem dómarnir komu með og við fengum höndina upp eftir 10–15 sekúndur trekk í trekk á meðan þeir ná að hanga rosalega á boltanum. Það var helvíti dýrt en ég get lítið annað gert en að hrósa strákunum fyrir frábæra frammistöðu.“ Valur leiddi 28-26 þegar lítið var eftir að ungverska liðið skoraði þrjú síðustu mörk leiksins. Þrátt fyrir svekkelsið vill Ágúst horfa fram á veginn enda bíður Valsmanna annað verkefni í Evrópudeildinni þegar danska liðið Mors-Thy verður næsti mótherji þeirra. „Við höldum áfram og reynum að nota næstu daga til að undirbúa okkur gegn Mors-Thy,“ sagði Ágúst að lokum. Um var að ræða fyrsta sigur Tatabanya í riðlinum og er liðið því komið með tvö stig, jafn mörg stig og Mors-Thy sem er þessa stundina að leika gegn Slovan. Valur mætir Mors-Thy í næstu viku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.