Fimm lið hafa þegar tryggt sér sæti í næstu umferð Evrópudeildar karla eftir að fjórðu umferð riðlakeppninnar lauk í gærkvöldi. Tvær umferðir eru eftir og því eru enn ellefu sæti laus í næsta hluta keppninnar. Flensburg, Granollers, Kadetten Schaffhausen, Torrelavega og Slovan eru liðin fimm sem hafa tryggt sér áframhaldandi þátttöku. Slovan er í sama riðli og Valur. Fjögur þessara liða, Flensburg, Kadetten, Torrelavega og Slovan Ljubljana, hafa unnið alla fjóra leiki sína og eru með fullt hús stiga. Granollers hefur hins vegar unnið þrjá leiki og tapað einum. Flensburg og Granollers eru bæði í E-riðili og eru bæði komin áfram úr þeim riðli en rúmenska liðið Buzău og portúgalska liðið Águas Santas eru bæði með eitt stig og geta ekki náð tveimur efstu sætum riðilsins. Valsmenn töpuðu afar svekkjandi gegn Tatabánya í Ungverjalandi í gærkvöldi, 29–28, þar sem Ungverjarnir skoruðu sigurmarkið skömmu fyrir leikslok. Þrátt fyrir tapið er Valur enn í öðru sæti H-riðils með fjögur stig eftir fjóra leiki. Slovan Ljubljana hefur þegar tryggt sér efsta sætið með átta stig en Tatabánya og Mors-Thy eru bæði með tvö stig. Valsmenn eiga því enn góða möguleika á að tryggja sér áframhaldandi þátttöku en síðustu tvær umferðirnar munu skera úr um hvort þeir fylgi Slovan áfram. Valur stendur vel að vígi í innbyrðis viðureignunum gegn bæði Mors-Thy og Tatabánya. FH-ingar eru úr leik í sínum riðli á botni riðilsins án stiga eftir grátlegt tap gegn Marítimo da Madeira á heimavelli í gær. Þar eru Limoges, Marítimo da Madeira og Bidasoa Irún í harðri baráttu um tvö efstu sætin en FH rekur lestina. Einn óvæntasti sigur fjórðu umferðarinnar kom í Norður-Makedóníu þar sem Eurofarm Pelister lagði þýska Bundesliguliðið Gummersbach, 29–28. Þetta var fyrsti sigur Pelister í riðlakeppninni og heldur liðinu inni í baráttunni um áframhaldandi þátttöku. Gummersbach er í öðru sæti G-riðils með fjögur stig en Pelister er með þrjú stig. Í sama riðli vann pólska liðið Wybrzeże Gdańsk nauman útisigur gegn Logroño La Rioja, 35–34, og styrkti stöðu sína á toppnum. Þorvaldur Örn Þorvaldsson leikur með pólska liðinu sem hefur gert vel í riðlakeppninni. 5. umferð Evrópudeildarinnar fer fram þriðjudaginn 24. nóvember en riðlakeppninni lýkur 1. desember. Þá kemur í ljós hvaða sextán lið halda áfram í útsláttarkeppnina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.