Þýska Bundesliguliðið Rhein-Neckar Löwen verður áfram án sænsku skyttunnar Edwins Aspenbäck en leikmaðurinn þarf að gangast undir skurðaðgerð vegna vandamála í kjálka. Félagið staðfesti tíðindin í gær eftir að frekari læknisrannsóknir leiddu í ljós að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerðar. Aspenbäck, sem er 26 ára gamall, hefur þegar misst af síðustu þremur leikjum Rhein-Neckar Löwen vegna vandamálanna. Hann mun gangast undir minniháttar aðgerð í næstu viku. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hversu lengi Svíinn verður frá keppni en endurkoma hans mun ráðast af því hvernig batinn gengur eftir aðgerðina. Forráðamenn Rhein-Neckar Löwen vonast þó til að Aspenbäck geti snúið aftur á völlinn einhvern tímann í desember. Þar með er ljóst ljóst að Aspenbäck verður ekki með Rhein-Neckar Löwen þegar liðið heimsækir Flensburg í þýsku Bundesligunni á sunnudaginn. Þar mætir Rhein-Neckar Löwen liði Arnars Freys Arnarssonar sem tapaði stórt gegn Magdeburg um síðustu helgi. Fjarvera Aspenbäck er enn eitt áfallið fyrir Rhein-Neckar Löwen sem hefur átt misjöfnu gengi að fagna á tímabilinu. Félagið vonast til að fá Svíann aftur til leiks fyrir þéttskipaða leikjadagskrá í desember en engin nákvæm dagsetning hefur verið gefin út um endurkomu hans.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.