Dregið verður í 16-liða úrslit Evrópubikars kvenna á morgun og verða Haukar á meðal þeirra sextán liða sem eftir eru í keppninni. Dregið verður í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vínarborg klukkan 10:00. Haukar eru í efri styrkleikaflokknum og munu því dragast gegn einu af átta liðunum í þeim neðri. Mögulegir mótherjar Hauka koma meðal annars frá Hollandi, Slóveníu, Serbíu, Sviss, Slóvakíu og Úkraínu. Leikirnir í 16-liða úrslitunum fara fram dagana 9.–17. janúar á næsta ári. Haukar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitunum með öruggum samanlögðum sigri gegn svartfellska liðinu Levalea Nikšić í þriðju umferð keppninnar fyrr í mánuðinum en báðir leikirnir voru leiknir hér á landi. Haukar unnu fyrri leikinn með átján marka mun, 42–24. Levalea hafði síðan betur í síðari leiknum, 27–24, en Haukar fögnuðu samanlögðum fimmtán marka sigri, 66–51. Liðin í neðri styrkleikaflokknum eru: Auk Hauka eru O.F.N. Ionias, Maccabi Haarazim Ramat Gan, Handball Erice, WHC Čair Skopje, Madeira Andebol, Iuventa Michalovce og Yalıkavakspor í efri styrkleikaflokknum. Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinni útsendingu á YouTube-rás evrópska handknattleikssambandsins, Home of Handball.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.