Glenn Solberg fyrrverandi landsliðsþjálfari Svíþjóðar hefur tekið við þjálfun norska úrvalsdeildarliðsins Bergsøy. Solberg tekur við stjórn þjálfarateymis félagsins út yfirstandandi tímabil eftir að Gintaras w, fyrrverandi þjálfari ÍBV, þurfti að stíga til hliðar vegna alvarlegra veikinda. Bergsøy er nýliði í norsku úrvalsdeildinni og hefur átt erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili meðal þeirra bestu. Félagið hefur nú fengið til liðs við sig einn reynslumesta handboltaþjálfara Norðurlandanna til að freista þess að rétta skútuna af. Solberg er afar þekkt nafn í evrópskum handbolta. Hann stýrði sænska karlalandsliðinu frá árinu 2020 til 2024 og gerði liðið að Evrópumeisturum árið 2022. Þá vann Svíþjóð bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu árið 2021 undir hans stjórn. Litáinn Gintaras Savukynas tók við Bergsøy fyrir tímabilið en hefur þurft að fara í veikindaleyfi vegna alvarlegra veikinda. Gintaras Savukynas er íslenskum handboltaáhugamönnum að góðu kunnur, ekki síst stuðningsmönnum Aftureldingar. Litháinn var einn af lykilmönnum hins sögufræga liðs Mosfellinga sem vann alla þrjá stóru titlana tímabilið 1998–1999. Hann lék með Aftureldingu frá 1998 til 2001 og varð einnig deildarmeistari árið 2000. Síðar lék hann með Gróttu/KR og þjálfaði ÍBV. Gintaras er því vel þekktur innan íslenska handboltasamfélagsins og átti stóran þátt í einu sigursælasta tímabili í sögu Aftureldingar. Gintaras þjálfaði Bergsøy á árunum 2013 til 2016 og sneri aftur til félagsins síðastliðið vor, tíu árum eftir að hann kvaddi félagið. Nú hefur Solberg samþykkt að koma félaginu til aðstoðar við þessar erfiðu aðstæður. „Fyrst og fremst snýst þetta um að vilja leggja sitt af mörkum og hjálpa félagi sem er í erfiðri stöðu. Þjálfari félagsins hefur þurft að fara í veikindaleyfi vegna alvarlegra veikinda. Hann er bæði samstarfsmaður og einstaklingur sem ég þekki og mér finnst mikilvægt að geta lagt mitt af mörkum ef ég get hjálpað,“ segir Solberg í tilkynningu Bergsøy. Solberg segist jafnframt hlakka til að vinna með ungum og metnaðarfullum leikmönnum félagsins. Hann hyggst byggja áfram á því starfi sem þegar hefur verið unnið hjá Bergsøy og nýta reynslu sína til að styðja við leikmenn og aðra þjálfara. Solberg mun sinna verkefninu samhliða daglegu starfi sínu hjá Olympiatoppen, afreksíþróttastofnun Noregs. Bergsøy hefur töluverða tengingu við íslenskan handbolta. Einar Jónsson, fyrrverandi þjálfari meðal annars Fram og FH, stýrði liðinu á sínum tíma. Þá hefur Lárus Gunnarsson einnig gegnt þjálfarastöðu hjá norska félaginu. Gintaras bætist í þann hóp þjálfara með íslenska handboltatengingu sem hafa komið að uppbyggingu Bergsøy á undanförnum árum. Félagið er frá Fosnavåg á vesturströnd Noregs og hefur tekið miklum framförum á skömmum tíma. Fyrir aðeins tveimur árum var Bergsøy í fallbaráttu í norsku B-deildinni en liðið vann deildina á síðustu leiktíð og tryggði sér þar með sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins. Bergsøy hefur hins vegar fengið að kynnast því hversu stórt skrefið er upp í efstu deild. Liðið situr í næstneðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar með tvö stig eftir tíu leiki og hefur aðeins unnið einn leik. Um síðustu helgi tapaði Bergsøy gegn Drammen, 31–22, og er því ljóst að mikið verkefni bíður Solbergs á næstu vikum. Næsti leikur liðsins verður á heimavelli gegn Kristiansand á sunnudaginn. Forráðamenn Bergsøy segjast afar þakklátir fyrir að Solberg hafi samþykkt að koma félaginu til aðstoðar. „Að fá þjálfara og handboltapersónuleika með reynslu og afrekaskrá Glenns inn í þjálfarateymið er gríðarlegur styrkur fyrir Bergsøy. Við erum bæði stolt og þakklát fyrir að hann vilji leggja okkur lið í þeirri stöðu sem félagið er í,“ segir í tilkynningu félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.