Tveir leikmenn Olís-deildarinnar gætu spilað með Bandaríkjunum á HM
Egill Bjarni Friðjónsson

Tveir leikmenn úr Olís-deild karla eru á 35 manna lista bandaríska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar næstkomandi.

Á listanum eru tveir leikmenn sem leika hér á landi, Sigurður Jefferson hjá Haukum og Gary Philips hjá ÍBV. Báðir eiga þeir því möguleika á að vera í lokahópi Bandaríkjanna á heimsmeistaramótinu í janúar.

Um er að ræða svokallaðan 35 manna leikmannalista en aðeins er heimilt að velja leikmenn á mótið sem eru á þeim lista sem skilað hefur verið inn til IHF. Það er því ekki sjálfgefið að Sigurður og Gary verði í lokahópnum þegar kemur að mótinu.

Bandaríski handboltamíðillinn Team Handball News greindi frá leikmannalistanum þann 17. nóvember og fjallaði um þá leikmenn sem koma til greina fyrir mótið.

Bandaríkin tryggðu sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu með sigri á Norður-Ameríku- og Karíbahafsmeistaramótinu fyrr á þessu ári þar sem liðið lagði Grænland að velli í úrslitaleik, 32-18.

Bandaríkin leika í G-riðli heimsmeistaramótsins ásamt Danmörku, Slóveníu og Angóla. Fyrsti leikur Bandaríkjanna fer fram í Kiel þann 15. janúar. Bandaríska landsliðið tók einnig þátt í heimsmeistaramótinu árið 2025 þar sem liðið hafnaði í 26. sæti.

Heimsmeistaramótið í Þýskalandi fer fram dagana 13.–31. janúar 2027 og verður jafnframt mikilvægt verkefni fyrir bandaríska landsliðið í undirbúningi þess fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top