Jamina Roberts hefur skrifað undir tveggja ára samning við IK Sävehof og mun ganga til liðs við félagið fyrir tímabilið 2027/28. Roberts, sem er 36 ára gömul, snýr þar með aftur til uppeldisfélags síns eftir langan og farsælan atvinnumannaferil erlendis. Roberts leikur með danska stórliðinu Ikast Håndbold en hefur nú ákveðið að flytja aftur heim til Svíþjóðar ásamt fjölskyldu sinni. Hún á von á sínu öðru barni á næsta ári en hefur tekið skýrt fram að hún sé ekki tilbúin að leggja handboltaskóna á hilluna. Roberts hóf feril sinn hjá Sävehof og lék sinn fyrsta leik með aðalliði félagsins árið 2009, þá aðeins 19 ára gömul. Hún varð sex sinnum í röð sænskur meistari með félaginu áður en hún hélt út í atvinnumennsku. Síðan hefur hún leikið með liðum í Danmörku, Ungverjalandi og Noregi, auk þess að hafa tvívegis snúið aftur til Sävehof. Þetta verður því fjórða tímabil hennar hjá félaginu á ferlinum, en hún hefur áður leikið með Sävehof á árunum 2009–2014, 2016–2017 og 2020–2022. „Sävehof er félagið sem stendur hjarta mínu næst og mér hefur alltaf þótt mjög vænt um það. Stór hluti æsku minnar tengist félaginu og þar hófst handboltaferill minn. Það er góð tilfinning að vera á leiðinni heim aftur,“ segir Roberts í tilkynningu félagsins. Roberts hefur átt afar farsælan landsliðsferil með Svíþjóð en hún lék 273 landsleiki og skoraði 735 mörk. Engin kona hefur leikið fleiri A-landsleiki fyrir Svíþjóð. Hún tók þátt í 19 stórmótum með landsliðinu og vann meðal annars til silfurverðlauna á EM 2010 og bronsverðlauna á EM 2014. Árið 2023 varð hún Evrópumeistari félagsliða með norska stórliðinu Vipers Kristiansand og hefur tvívegis verið valin handknattleikskona ársins í Svíþjóð. Roberts segir að mögulegt sé að hún ljúki ferlinum hjá Sävehof en leggur áherslu á að hún sé ekki að snúa aftur til að hægja á sér. „Ég sagði fyrir sex árum að ég væri að koma heim til að ljúka ferlinum en það fór ekki alveg þannig. Við sjáum hvernig þetta þróast núna en það væri fallegt að geta mögulega lokið ferlinum á sama stað og hann hófst,“ segir Roberts. Sävehof er sem stendur í efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar og er undir stjórn Isabelle Gulldén, fyrrverandi landsliðsfélaga Roberts.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.