Það hefur verið mikið álag á leikmönnum TTH Holstebro í danska handboltanum að undanförnu en liðið leikur í kvöld sinn fjórða leik á aðeins átta dögum þegar það heimsækir KIF Kolding í dönsku úrvalsdeildinni. Arnór Atlason er þjálfari liðsins og með liðinu leika þeir Jóhannes Berg Andrason og Benedikt Gunnar Óskarsson. TTH Holstebro hefur verið í mikilli törn síðustu daga þar sem liðið hefur leikið í bikarkeppninni, dönsku úrvalsdeildinni og Evrópukeppni. Línumaðurinn Teis Horn segir í samtali við heimasíðu félagsins að lykillinn að góðum úrslitum sé að leikmenn þori að spila sinn leik þrátt fyrir mikið álag. „Þetta verður erfiður leikur á erfiðum útivelli. Við náðum góðum og mikilvægum sigri gegn Mors-Thy um síðustu helgi og það mikilvægasta sem við tökum með okkur úr þeim leik er að við spilum best þegar við sleppum handbremsunni og spilum af hraða og hugrekki,“ segir Horn. Hann telur jafnframt mikilvægt að liðið endurtaki það sem gekk vel í fyrri viðureign liðanna á tímabilinu, sérstaklega í varnarleiknum. „Við þurfum að hafa stjórn á skyttum Kolding og þeir eru einnig með öfluga leikmenn í maður á mann stöðunum sem við þurfum að vera vakandi fyrir. Það var meðal annars eitthvað sem okkur tókst vel þegar við mættum þeim á heimavelli.“ Leikur KIF Kolding og TTH Holstebro fer fram í Sydbank Arena í kvöld og hefst klukkan 19:00. TTH Holstebro er í 10.sæti deildarinnar með 11 stig eftir sigur á Mors-Thy í síðustu umferð en KIF Kolding er í 12.sætinu með sjö stig. Eftir erfiða byrjun hafa lærisveinar Arnórs unnið tvo síðustu deildarleiki sína og geta bætt þeim þriðja við í kvöld á útivelli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.