Sneri aftur á völlinn fjórum mánuðum eftir barnsburð
Sævar Jónasson

Ída Bjarklind Magnúsdóttir lék sinn fyrsta leik á tímabilinu með Selfossi þegar liðið mætti Val í Olís-deild kvenna um helgina. Ída eignaðist sitt fyrsta barn í byrjun júlí á þessu ári og var því að snúa aftur á handboltavöllinn rúmum fjórum mánuðum eftir barnsburð.

Ída var í leikmannahópi Selfoss í fyrsta sinn á tímabilinu og kom við sögu í leiknum gegn Val þar sem Selfyssingar þurftu að sætta sig við tap, 23-34. Endurkoma Ídu eru þó jákvæð tíðindi fyrir Selfossliðið sem hefur þar með endurheimt öflugan leikmann fyrir komandi átök í deildinni.

Ída er hávaxin skytta sem getur einnig látið mikið að sér kveða í varnarleiknum. Hún gekk til liðs við Selfoss fyrir síðustu leiktíð og lék ellefu leiki með liðinu þar sem hún skoraði samtals 28 mörk. Áður hafði hún leikið með Víkingi í Grill 66-deildinni.

Selfoss situr í sjötta sæti Olís-deildar kvenna með níu stig eftir tíu leiki. Endurkoma Ídu gefur liðinu aukna breidd, bæði í sókn og vörn, þegar líður á keppnistímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top