Kristianstad með risasigur í stórleiknum
Kristianstad

Kristianstad tók á móti Alingsås í stórleik í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en fyrir leikinn munaði tveimur stigum á liðunum. Alingsås voru í efsta sæti deildarinnar ásamt Malmö og Hammarby með sextán stig á meðan meistararnir í Kristianstad voru með tveimur stigum minna, fjórtán stig í sjötta sæti deildarinnar.

Sænsku meistararnir léku á alls oddi á heimavelli sínum í kvöld og leiddu með sex mörkum í hálfleik, 19-13. Það kom aldrei til greina hjá heimamönnum að stíga af bensíngjöfinni heldur gáfu þeir bara meira í og unnu á endanum gríðarlega þægilegan og öruggan ellefu marka sigur, 40-29.

Einar Bragi Aðalsteinsson átti frábæran leik í liði Kristianstad en hann skoraði þó aðeins fjögur mörk úr fimm skotum en gaf heilar níu stoðsendingar. Andri Erlingsson og Ólafur Guðmundsson voru einnig báðir í leikmannahópi liðsins en komu lítið við sögu í kvöld.

Úrslit kvöldsins:

Kristianstad 40-29 Alingsås

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top